Aðalstjórn
Í aðalstjórn eiga sæti forseti, ritari og gjaldkeri.
Stjórn Nemendafélags er jafnframt nemendaráð skv. lögum um framhaldsskóla.
Aðalstjórn hefur ákvörðunar- og framkvæmdavald í öllum almennum málum NFFA. Nánar...
GEY
Nafn félagsins er Góðgerðafélagið Eynir, skammstafað GEY.
Tilgangur félagsins er að auka samlífi meðal nemenda og þar með eyða einlífi.
GEY skal standa fyrir og/eða taka þátt í samkomum a.m.k. einu sinni á önn sem geta aukið samlífi meðal nemenda.
Velja skal á hverri árshátíð NFFA GEY-konung og GEY-drottingu með löglegri, leyndri atkvæðagreiðslu.
Félagið skal á hverju skólaári standa fyrir útgáfu hlutar, s.s. dagatals, sem vakið getur áhuga eyðslusamra Íslendinga til styrktar nemendafélaginu. Nánar...
Íþróttaklúbbur
Nafn klúbbsins er íþróttaklúbbur NFFA.
Formaður klúbbsins hefur yfirumsjón með íþróttastarfsemi á vegum NFFA.
Hann skal sjá um skipulagningu og umsjón íþróttamóta á vegum NFFA og þeim mótum sem NFFA tekur þátt í.
Formaður íþróttaklúbbs skal skipuleggja frjálsa tíma í íþróttahúsinu og auglýsa þá eigi síðar en með tveggja sólarhringa fyrirvara. Nánar...
Leiklistarklúbbur
Nafn klúbbsins er Leiklistarklúbbur NFFA.
Á hverri haustönn skal Leiklistarklúbbur standa fyrir leiklistarnámskeiði.
Leiklistarklúbbur skal sjá um uppsetningu leiksýningar á vorönn. Undirbúning leiksýningar skal hefja í lok haustannar og skal frumsýna annan föstudag í febrúar.
Formaður Leiklistarklúbbs er sjálfkjörinn framkvæmdastjóri leiksýningarinnar.
Ef svo ber undir að formaður tekur virkan þátt í sýningunni er honum heimilt að skipa framkvæmdastjóra í sinn stað.
Formaður Leiklistarklúbbs skal undir öllum kringumstæðum sjá um val á leikstjóra, samningagerð og önnur samskipti við hann. Minnst 30% af kostnaði leiksýnigar skal aflað með auglýsingatekjum. Nánar...
Listaklúbbur
Ljósmyndaklúbbur
Nafn félagsins er Ljósmyndaklúbburinn Myrkraverk.
Ljósmyndaklúbburinn sér um allt sem við kemur myndböndum, upptökum og ljósmyndum á öllum helstu viðburðum NFFA og skal sjá til þess að upptökur á viðburðum séu sýndar á kaffihúsakvöldum NFFA.
Félagið skal í samráði við vefnefnd koma myndum af viðburðum inná heimasíðu félagsins. Ljósmyndaklúbbur skal halda stuttmyndakeppni á hverri vorönn ef næg þátttaka næst. Nánar...
Tónlistarklúbbur
Nafn klúbbsins er Tónlistarklúbbur NFFA.
Markmið Tónlistarklúbbs er að glæða áhuga hins almenna nemenda á tónlist.
Formaður Tónlistarklúbbs skal sjá um framkvæmd tónleika sem haldnir eru í nafni NFFA.
Tónlistarklúbbur skal ásamt aðalstjórn sjá um skipulagningu og framkvæmd á Tónlistarkeppni NFFA sem haldin skal á haustönn samhliða Skammhlaupi.
Nánar...
Útvarpsráð
Útvarpsráð sér um Útvarp Blómið.
Útsendingar munu væntanlega hefjast þetta skólaárið eftir áramót og dagskrárgerðar og tæknimannanámskeið sem haldin verða í haust. Nánar...
Vefnefnd
Nafn nefndarinnar er Vefnefnd NFFA.
Markmið Vefnefndar er að stuðla að auknum tölvuáhuga og þekkingu á nýjustu tækni meðal nemenda.
Vefnefnd ber ábyrgð á heimasíðu NFFA og sér um að uppfæra hana reglulega þannig að hún flytji ávalt nýjustu fréttir af skólalífinu. Nánar...
Viðburðastjórn
Viðburðastjórn starfar í nánu samstarfi við aðalstjórn og skal virkja klúbbaformenn við margskonar skemmtiviðburði.
Hún skal hafa yfirumsjón með kaffihúsakvöldum sem haldin eru a.m.k. tvisvar sinnum á önn.
Viðburðastjórn skal útbúa fjárhagsáætlun í upphafi hverrar annar. Nánar...
Viskuklúbbur
Nafn klúbbsins er Viskuklúbbur NFFA.
Tilgangur klúbbsins er annarsvegar að æfa meðlimi í ræðumennsku og rökfimi og hins vegar að auka þekkingu þeirra.
Viskuklúbbur skal halda námskeið a.m.k. einu sinni á vetri, ef nægur áhugi er fyrir því. Viskuklúbbur skal í samvinnu við aðalstjórn halda ræðukeppni einu sinni á ári til minningar um Karl K. Kristjánsson.
Formaður Viskuklúbbs skal í samvinnu við aðalstjórn skrá keppnislið FVA í MORFÍS ár hvert ef nægur áhugi er fyrir því. Formanni er skylt að skrá keppnislið FVA í spurningakeppni framhaldsskólanna, GETTU BETUR, ár hvert. Hann skal og hafa veg og vanda að undirbúningi beggja keppnisliðanna. Nánar...
Vefnefnd NFFA - Tómas Árnason 2009