Mjórra | Breiðara
27. ágúst 2010 kl. 17:56 Tómas Alexander Árnason | Vefnefnd

TA DAAAA!

Ég er núna búinn að keyra inn nýja nemendur og fá nemendur tækifæri til að nýskrá sig á síðunni innan nokkurra daga.

Þakka Sóla fyrir hjálpina og krúttunum á skrifstofunni fyrir nemendalistana ;*

2 athugasemdir

24. ágúst 2010 kl. 11:05 Tómas Alexander Árnason | Vefnefnd

Bein lýsing frá atburðum dagsins.

Svo virðist sem að hópur nýnema hafi hertekið fótboltaborðið svokallaða. Málið þykir hið furðulegasta og við fylgjumst spennt með framvindu mála hér á nemendafélagsvefnum.

UPPFÆRT:

Haddi kom með haglabyssuna og „took care of it“ eins og hann sagði sjálfur í viðtali við nemendafélagsvefinn.

0 athugasemdir

Ég (Salka) og Martha tókum upp lokaballið á föstudaginn og ég er búin að klippa þetta saman og herlegheitin eru komin inná sjálfan veraldarvefinn! :)
Þið getið farið í myndbönd í tenglunum hér til vinstri en ég set líka linkinn hér ? fréttina þannig þið getið farið beint inná youtube og horft þetta þar, þar er einnig að finna önnur myndbönd frá kvikmyndaklúbb ;)

http://www.youtube.com/watch?v=3A7UI6xd5J0

Ég vil líka nota tækifærið og óska ykkur gleðilegs sumars og sjáumst útúr tönuð og hress næsta haust þar sem kvikmyndaklúbbur mun halda áfram starfi sínu og taka upp ómissandi viðburði nemendafélgs :)

0 athugasemdir

26. apríl 2010 kl. 23:41 Inga Þóra Lárusdóttir | Aðalstjórn

LOKABALL !!!

Það er komið að seinasta viðburði þessa skólaárs..Lokaballinu!!

Það verður haldið á Breiðinni þann 30.apríl.
Húsið opnar: 23.00
Húsið lokar: 23.30
Ballið stendur til 02.00

DJ Heiðar Austman mun trylla dansgólfið!!!

Aðgöngueyrir eru fáeinar 1500 kr fyrir NFFA.
ÓNFFA: 2000 kr.

Sjáumst öll hress og kát á föstudaginn og kveðjum útskriftarnemana með stæl!!!:D

Annað sem er framundan í vikunni:
Þriðjud: Kosningar!
Fimmtud: Úrlsit kosninga verða kynnt og grill í hádeginu fyrir alla!
Föstud: Dimmishow og Lokaball!!:D

0 athugasemdir

Vefnefnd NFFA - Tómas Árnason 2009